Stóll sem er meira en stóll og má vera bæði inni og úti
Posted by Jon Axel Olafsson on
Litli Álfurinn er ný vara frá JAX HANDVERK. Hann var upphaflega hugsaður sem lítill kollur sem myndi geta þjónað margvíslegum hlutverkum á sólpallinum eða í garðinum. En vinir okkar voru fljótir að átta sig á marvíslegum möguleikum hans. Sumir bentu á að þetta væri hentugt borð eða náttborð jafnvel, nú eða skrautmunur í stofuna, sem hægt væri að hafa viðarlitaða eða bara einhvernvegin á litinn.
Litli Álfurinn er 48cm á hæð og 34 cm á breidd. Honum fylgir meira að segja einn sólardagur!
DEILA
- 0 comment
- Tags: 2020, Inni og úti, Litli Álfurinn, Stóll, Sumar