Lífræn TÓMATSÓSA frá Sikiley - án allra aukaefna
Lífræn og fersk tómatsósa frá Sikiley
Del Grillo tómatsósan er framleidd úr handtíndum, lífrænt ræktuðum tómötum ræktuðum á landi Del Grillo fjölskyldunnar í Alcamo og Vita á Ítalíu.
Afbrigði tómatanna kallast Siccagno, dregið af ítalska orðinu Secco „þurrt“. Jarðvegur landsins er sendinn, mjög lítið vatn er notað og því einungis náttúrlegur raki sem nýtist til að tómatarnir þroskist og vaxi. Þegar tómatarnir hafa þroskast nægilega vel eru þeir handtíndir og valdir af nákvæmni og unnir án allra auka- eða rotvarnarefna. Þeir eru síðan soðnir við 60° C til að varðveita náttúrulega eiginleika bæði hráefnisins og sósunnar.
Innihald: Siccagno tómatar (98%), laukur, jómfrúar ólífuolía, salt, flórsykur, basil (0.08%) og chili pipar. 680 g glerkrukka.
Næringargildi í 100gr.
Hitaeiningar 30 kcal
Fita 0,0 g
- þar af mettaðar 0,0 g
Kolvetni 5,9 g
- þar af sykur 5,9 g
Trefjar 1,5 g
Prótín 0,9 g
Salt 0,0 g
Geymist á köldum og þurrum stað og frá sólarljósi og hita. Eftir opnun geymist sósan best í kæliskáp og heldur fullkomnum gæðum til neyslu í tvo til þrjá daga.