OLIO NITTI - EKTA ÍTÖLSK ÓLÍFUOLÍA OG MÖNDLUR
OLIO NITTI - Ekta ítölsk ólívuolía loksins komin til Íslands.... og Olio Nitti salat möndlurnar líka!
Í Puglia er mesta ólífuolíu framleiðsla Ítalíu. Þar er að finna allskyns framleiðendur og jafn margar framleiðsluaðferðir. Þegar við bjuggum á Ítalíu s.l. vetur hittum við Nitti fjölskylduna fyrir algjöra tilviljun.
Þessi litla fallega fjölskylda á sitt eigið land í Puglia þar sem þau rækta ólifur og framleiða þaðan sína eigin ólifuolíu - Olio Nitti EVO. Það þýðir að hún er lífræn og ekta ítölsk ólífuolía.
Fjölskyldan hefur framleitt ólifuolíu og möndlur í áratugi og hefur ávalt verið trú upphaflegu uppskriftinni og markmiðinu: engin fjöldaframleiðsla og engin sjálfvirkni. Bara eðal ólifuolía með miklu og góðu bragði. Öll átöppun er gerð eins og í gamla daga; flösku fyrir flösku. Fjölskyldan öll hjálpar til við merkingar og pökkun.
Við erum þakklát og heppin að geta boðið ykkur upp á mögulega bestu ólifuolíu í heimi. Prófið líka möndlurnar..... þær eru ávanabindandi!